Um Leikjabankann


 

Markmið Leikjavefjarins / Leikjabankans
Leikir hafa margþætt gildi í skólastarfi. Þeir virkja nemendur og þeir stuðla að tilbreytingu og æskilegri fjölbreytni. Margir leikir hafa góð áhrif á samkennd í hópi og félagsanda. Sumir leikir efla hreyfifærni og snerpu, aðrir skerpa athyglisgáfu. Enn aðra má nota til að festa staðreyndir í minni, þjálfa málnotkun, efla hugtakaskilning, orðaforða eða rökhugsun eða auka hugmyndaflug og ímyndunarafl.

Leiki má flokka á ýmsa vegu. Í þessu safni eru þeir flokkaðir í ýmsa hópleiki, hreyfileiki og æfingar, hreyfiþrautir, skynjunarleiki, ratleiki, ýmsa námsleiki, leikræna tjáningu, leikbrúður, námspil, orðaleiki, spurningaleiki, rökleiki og raðþrautir. Einnig eru í safninu nokkrir leikir sem notaðir eru til að velja eða telja í leiki, skipta í hópa og til að læra að þekkja nöfn eða kynnast (kynningarleikir).

Hverjum leik er lýst þannig að fyrst eru talin markmið hans, gerð er tillaga um aldur þeirra nemenda sem leikurinn er talinn henta og síðan talin þau gögn sem nota þarf. Þá fylgir lýsing á leiknum og stundum fylgja dæmi um afbrigði og útfærslumöguleika eða aðrar athugasemdir eftir því sem við á. Þá eru nefndar heimildir séu þær kunnar. Fyrir aftan hverja lýsingu eru nöfn þeirra sem lagt hafa af mörkum til hennar.

Allar leiklýsingar verður að lesa með því hugarfari að enga hugmynd má taka sem gefna. Alla leiki má útfæra og þeim má breyta og þá má þróa og laga að nýjum aðstæðum og það er einmitt afar mikilvægt að gera það. Mikilvægt er að fylgjast vel með undirtektum nemenda og kanna hvernig þeir bregðast við, svo hægt sé að gera leikinn hnitmiðaðri. Oft hentar beinlínis að leita eftir hugmyndum frá nemendum um það hvernig hægt sé að gera leikinn skemmtilegri. Stöðugt þarf að spyrja: Hvernig getur þessi leikur höfðað enn betur til nemenda eða hvernig má ná meiru út úr honum?

Mikilvægt er að muna að allir leikir hafa ákveðin takmörk. Flestir eiga sér skamman líftíma. Leikir koma og fara. Þetta sést vel á leikjum barna í skólum, t.d. í frímínútum. Ákveðnir leikir eru vinsælir um skeið, en hverfa síðan og aðrir taka við. Jafnvel mjög skemmtilegur leikur dugar aðeins í skamman tíma. Þá verður að skipta um. Þetta verður að hafa í huga þegar leikir eru valdir.

Ingvar Sigurgeirsson